Live by my rules, and everything will be fine...

Raven´s World.

11.07.2007 10:56:19 / Hjalti

North and South kveður.

Jæja ég vil bara láta ykkur þau sema kíkja á þessa síðu vita að ég er alfluttur yfir á www.123.is/ravenþví ég sé engan tilgang í að reyna að halda uppi tveimur síðum. Endilega kíkið á hina síðuna enda eru þar fullt af myndum.

Takk fyrir mig og sjámumst vonandi á hinni síðunni.

Kveðja Raven.


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.06.2007 23:50:17 / Hjalti

Frisbí, jibbí...

Kominn tími á smá blogg. Við fórum neflilega í frisbí hérna um daginn sem var alveg stór góð skemmtun. Ég ætla að sína ykkur nokkrar myndir frá þessu kvöldi ok.

 

Eydís góð á því. Á leið úr pollinum.
 Eydís svífur hér á eftir frisbídisknum. Hún greip hann...
 
Andri að gera sig kláran að grípa diskinn, ég er samt ekki viss um að hann hafi gripið hann.
Jú jú hvað haldiði, hann greip diskinn og ekkert smá ánægður með það.
Andri í banastuði. 2 diskar í umferð.
 
Eydís enn að henda sér á eftir disknum. Og enn eru 2 í umferð.
 
Andri að kenna okkur hvernig eigi að kassta, eða ekki kassta ég man ekki.
Ekki er ég alveg viss hvað hann er að tala um en eitt veit ég að það er ekki tippið á honum.
Tinna næstum skotin niður. Diskurinn endaði svo í myndavélinni hjá mér.
Svo var kvöldinu slúttað á sönnum vestfirskum nótum, flökun þorsks.
Svo vil ég náttúrulega minna ykkur á www.123.is/raven þar eru komnar nýjar myndir inn, nokkuð nettar.
Jæja þetta er nú orðið ansi gott. Verið blessuð.

» 2 hafa sagt sína skoðun

09.06.2007 17:14:45 / Hjalti

Skammtur 2.

Jæja þá er ég búinn að setja inn skammt númer 2 í átakinu.

Svo eru náttúrulega komnar nýjar myndir inn á www.123.is/raven

En já endilega segið ykkar álit. Núna er  ég farinn því það er risastór geitungur í glugganum sem er að gera mig mjög svo stressaðan.

Bæbæ...


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 00:31:37 / Hjalti

Myndasíða

Búinn að stofna myndasíðu á 123.is. Myndirnar frá sjómannadagshelginni komnar inn ;)

www.123.is/raven


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 15:53:41 / Hjalti

Átakið.

Jæja þá er ég að byrja í líkamsræktarátaki. Markmið mitt er að vera orðinn nokkuð fitt eftir sumarið sem segir sig nokkurnvegin sjálft. Það yrði nokkuð lélegt að fara í átak og markmiðið væri að verða nokkuð feitur eftir sumarið. En allavegana ég ætla að leifa gestum síðunnar að filgjast með hvernig mér gengur. Sem er bara svona kvatning fyrir mig. Ég mun setja inn myndir með ákveðnu millibili, fyrstu myndirnar eru nú þegar komnar inn og getið þið séð þær með því að klikka á Átakið hér niðri til vinstri á síðunni.

Þetta er komið gott ég býst við að þið skiljið þetta alveg.

P.s. Þið sem eruð gjörn á að kúgast þá bið ég ykkur að skoða ekki fyrstu myndirnar.

Hafið það gott síja all.:haha:


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.05.2007 23:19:27 / Hjalti

Kominn heim...

Jæja þá er maður kominn vestur á Tálknó. Núna verður það ekkert nema vinna og ræktin og vonandi mun ég geta fjárfest í einni myndavél svo ég geti deilt með ykkur fegurð fjarðarins.

Fluttningurinn gekk bara vel, fór með Mörtu á Kílhraun og gisti hjá henni fyrstu nóttina. Það var mjög erfitt að fara þaðan um morguninn:( en maður verður bara að vera sterkur. Maður er búinn að fara 2 í pollinn eftir að maður kom. Pollurinn er æðislegur!:)

En já ég hef svosem ekki mikið meira að segja nema að ég vonast náttúrulega að sjá ykkur sem flest um sjómannadagshelgina og þá helst Gunnar en helst Jónas en samt helst Magga en aðalega Mörtu, já og kannski þig bara líka.:)

Ekki vera feimin að kommenta.

Bless.


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.05.2007 17:33:10 / Hjalti

Ekkert sniðugt.

Þungur, virkilega þungur:(
Það er erfitt að vera einn þegar maður er umkringdur fólki.

» 1 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 10:59:23 / Hjalti

Karlmaður?

Halló, halló, halló. Jæja þá er talvan komin úr viðgerð og er hún alveg eins og ný.

Skítt með það. Núna er sumarið á næsta leyti og það er kominn smá fiðringur í mann, en samt smá kvíðinn líka, en það er allt annað mál.

Ég veit ekki með ykkur en ég hef verið að pæla. Hvað gerir mann að manni? Er það líkamlegt eða er það andlegt. Eru það grófir andlitsdrættir, kraftlegur vöxtur og karlrembu attitute. Ég held að það sé ekki líkamlegt þar sem ég lít á mig sem sannan karlmann8). (sannur karlmaður er EKKI Gilzenegger) Ég er kannski lúðalegur karlmaður, en hver er það ekki. Það væri gaman að vita hvert ykkar sjónarmið er á þessu. Hvernig finnst ykkur að karlmaður eigi að vera. Ég segi að hann eigi að vera eins og ég.:haha:

T.d. þetta er karlmannlegt.:$
Allavegana þá ætla ég að minna ykkur á sjómannadagshelgina sem er eins og alltaf fyrstu helgina í Júní, og það má ekki gleyma Hafstraumum sema eru þessa helgi. Þetta verður allt á Patró fyrir þá sem ekki vissu það. Hvet ég alla sema voru ekki þarna á síðasta ári að mæta, því þetta var geggjað stuð.
Jæja nóg í bili.
Kveðja Hjalti litli.

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.04.2007 17:50:24 / Hjalti

Loksins.

Váááááááá hvað það er langt síðan ég bloggaði. Talvan mín er búinn að vera biluð og er sem stendur í viðgerð, þannig að héðan í frá mun ég reyna að vera duglegri við þetta.

Ekki er mikið búið að gerast hjá mér, bara svona sitt lítið af hverju eins og að láta mér vaxa yfirvararskegg og litaði á mér augabrýrnar, svo kleif ég nokkur fjöll og gegg yfir grænlandsjökul og fann nýja eyju. Þetta er bara svona smá brot af því sem ég hef verið að gera á meðan talvan er í viðgerð.

Fór í gær á Dillon þar sem Tab 22 voru að spila og voru þetta alveg magnaðir tónleikar. Ég mæli með fyrir þá sem ekki hafa enn séð þá spila að reyna að fylgajst með þeim og skella sér á ball/tónleika með þeim.

Það er annars ekki mikið að frétta nema að ég verð á Tálknó í sumar að vinna í Eikinni og sjálfum mér.

Bless í bili bollurnar mínar.


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.02.2007 19:20:29 / Hjalti

Heimsóknarmet!!

Hvað er í gangi? 223 heimsóknir!! Ef einhver getur komið með skýringu á þessari skyndilegu heimsóknaraukningu þá má sko alveg láta mig vita!! Ég tel mig nokkuð vinsælann mann en þetta er skrítið en samt skemmtilegt því ég er ekkert það duglegur að blogga!

Hjalti's out :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.02.2007 15:55:30 / Hjalti

Snjarf, snjarf...

Kæra dagbók, núna er ég búinn að vera veikur alla helgina og þar af leiðandi missti ég af þorrablóti brottflutra tálknfirðinga sem suckar feitt. Vonandi skemmtu allir sér konunglega á því. Annars er ekki mikið búið að gerast hjá mér nema bara vinna og ekkert annað en vinna.

Það er eitt sem mig langar að koma á framfæri og það er að ég á afmæli á morgun:haha:, bara svona að láta ykkur vita sem vissuð það ekki. Ég er að verða 24 ára gamall kall8).

Er ekki líka kominn tími á hitting hjá okkur tálknópúkunum. Það væri rosa gaman ef það verði einn svoleiðis á næstunni:haha:.

Svo mun það gerast á næstu dögum að kallinn er að fara að fara í ræktina og koma þessum sorglega kroppi sínum í form, ekki það að þið hafið einhvern áhuga á honum en ég vildi bara svona koma þessu á framfæri.

Eitt enn. Ég hef tekið eftir því þegar ég er í vinnunni að það eru einstaklingar (mikill meiri hluti konur) sema virkilega þurfa að læra að leggja, ég hef oft orðið var við það að þessir einstakkligar (konur) leggi bílunum þannig að meiri hluti bílsins nær langt út á götuna. Meir að segja í kringlunni lalgði einn (kona) þannig að bíllinn náði valla hálfur inn í bílastæðið og blokkaði þannig umferð þar framhjá. Ef ég hefði ekki verið þarna þegar þessi manneskja(kona) lagði bílnum þá hefði hún skilið hann svona eftir og farið inn.

En allavegana þá er þetta komið gott hjá mér. Verið sæ að sinni ykkar innlægi MASTER OF THE PLANET.:klikk:

P.s. Gunnar ertu búinn að finna eldur í eldur snúruna sem mig vantar til að geta sett myndbönd inn á síðuna.


» 2 hafa sagt sína skoðun

28.01.2007 13:24:55 / Hjalti

2 ÁR

Jæja gott fólk nú hef ég gleðifréttir að færa, þær eru allavegana mjög glaðlegar fyrir mig:haha:. Núna eru akkurat 2 ár síðan ég og Marta byrjuðum saman:haha::haha:.

Marta mín ég elska þig svo mikið og ég mun elska þig að eylífu.

Annars er ekki mikið að frétta. En eitt get ég sagt ykkur að.... 


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.01.2007 20:52:52 / Hjalti

Það er bara ég.

Jeminn eini það er kominn 24. Janúar og ég er að skrifa mína fyrstu færslu á árinu. Ég er alveg viss um að þeir sem kíkja reglulega á síðuna mína haldi að ég sé bara dauður. Eða vona það allavegana...

Það er svosem ekki mikið búið að gerast síðan síðast. Ekki nema killer áramót heima á tálknó.:haha:

Gott fólk núna fer að líða að þorrablóti brottflutra Tálknfirðinga og kvet ég alla sem vetlingi geta valdið að skella sér á þorrablótið. Úff þetta er alveg rosalegt ég get bara hef ekkert að segja núna. Vonandi verður ekki svona langt í að ég bloggi næst.

Þangað til næst, farið vel með ykkur. ble.


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 23:43:42 / Hjalti

Jólastress.

Ég ætla bara láta vita að ég er enn á lífi ef einhver vildi vita.

Núna eru jólin að koma og ég er í fyrsta skipið að upplifa smá jólastress. Ég hef aldrei á æfinni fundið fyrir stressi sem tengjast jólunum, en núna er þetta soldið annað. Ég fer ekki vestur fyrr en 23. sem veldur mér smá stressi, verður fært, mun veðrið vera nógu gott svo Baldur sigli og missi ég af Baldri, þetta er bara einn þáttur í mínu stressi. Svo eru það jólagjafirnar. Hvað á ég að gefa hverjum.

Ég er að vona svona til að geta létt aðeins á stressinu að við tálknó fólkið getum komið saman, þó það sé ekki endilega hittingur. Alveg sama hvort það verði á föstudegi eða laugardegi, bara að við getum gert einhvað saman. þá er ég að tala um núna þessa helgi.

Jæja þetta er nú orðið gott. Smá tilbreyting frá myndböndunum.

Sé ykkur á hinni hliðinni.


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 19:09:36 / Hjalti

Brjálaður...

Vonandi mun ég ekki vera einn á næsta myndskeiði sem ég mun sýna hér.


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan
Ýmislegt stuff.
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti